B.u.n.n.y.G.i.r.l.s Anna*Elín*Halla*Helena*Helga*Jenný*Margrét*Rakel*Sally*Sigga*Sirra*Steinunn*Sunneva*Thelma*Þórunn
18.01.2006 17:30:49 / Siggus

GAME OVER

ERUM SKO ÞOKKALEGA LÖNGU KOMNAR MEÐ NÝTT BLOGG.... NÝTT BLOGG MEÐ NÝJUM ÁHERSLUM, NÝ MARKMIÐ OG NÝ HUGSUN.. (EKKI GÓÐ AUGLÝSING ;) )

WWW.BONNUR.TK


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2005 12:41:50 / þórunn

V.I.P raðir á íslandi!!

var að lesa pistil í fréttablaðinu í morgun um V.I.P raðir inná skemmtistaði í Reykjavík um helgar. Ég er nú alveg hjartanlega sammála greinahöfundi að þær eru alveg ÓÞOLANDI. Ég er nú ekki nógu fræg hérna á þessu litla Íslandi ( ef að það er þá hægt að segja að einhver sé frægur hérna) þannig að ég þarf alltaf að bíða í röð í óratíma til að komast inná þessa staði einsog allir hinir smáborgararnir:^). Ég hef því ákveðið að gera breytingu þar á og reyna að hasla mér völl inná frægðarbrautina sem fyrst... helst fyrir helgi....

en hvað get ég gert? ekki get ég sungið.. hef engan hæfileika í það!!! ekki get ég dansað... er taktlausari en Leoncie.... þannig að ég verð bara að gera eitthvað nógu frumlegt.....   kannski hlaupa allsber eftir strætó á snorrabrautinni? veit það ekki alveg:$

endilega ef að þið hafið einhverjar hugmyndir um það hverning ég kemst sem hraðast inná frægðarbrautina..... commentiði;)

Þórunn minni en smáborgarinn;)

» 67 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 18:52:46 / þórunn

gúddí búddí

hæ kútarnir mín

nei ég er svo lánsöm Helga mín að vera hvorki með ritstíflu né neinar aðrar stíflur;) er bara ekki búin að vera með neitt netsamband í allt sumar... foreldrar mínir hafa ekki uppgötvað netið ennþá... eru bara nýlega búinn að uppgötva uppþvottavelina og fleiri tækniframfarir verða ekki á því heimili næstu árin;) vonandi bæti ég þetta bara upp með ágætis pistlum í vetur;)  annars er bara allt gott að frétta af mér, er byrjuð í skólanum aftur og ég og hann Svenni minn Pitt erum búin að stofna til heimilis að Snorrabraut 30... sem er btw við laugarveginn þannig að þið vitið að dyrnar mínar eru alltaf opnar fyrir ykkur, líka á næturnar:haha:  ég kem samt örugglega ekki mikið á selfoss í vetur því að ég er bíllaus:cry: stjáni blái er alveg að gefa upp öndina og ég treysti mér ekki að keyra kútinn... en við skulum ekkert væla yfir því, það er ekkert jafn hressandi enn að bíða eftir strætó á morgnanna í misgóðu veðri:D  ætla ekki að hafa þetta neitt lengra í bíli, þarf að fara og stunda húsmóðurstörfin af krafti;)

lovelí búblí og knús


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 15:28:49 / Helga Lillian

Á diskinn minn: lambakjöt!

Góðan daginn hér...

Nú sit ég í skólanum og hef nákvæmlega ekkert að gera. Á að vera að læra stjörnufræði en það er aukaatriði. Ég er nú búin að læra margt merkilegt samt þar skal ég ykkur segja. Til dæmis að jörðin gæti sogast inn í svarthol á hverri sekúndu og enginn myndi vita af því. Svartholið myndi hreinlega gleypa jörðina:o

Ég hef svosem ósköp lítið að segja, langaði bara að forvitnast hvort einhverjar ætli á réttarball á föstudaginn?

 Á morgun eru bleikir dagar í skólanum og þá eiga allir að koma í einhverju bleiku;)

Ég var samt að pæla í einu... Afhverju eru vinir (karlkynsvinir) ekki kallaðir vinkarlar eins og konur eru kallaðar vinkonur? Skrítið...

 P.s. hvernig væri nú að fara að blogga endrum og sinnum þið sauðir? (Rakel, Elín, Thelma, Jenny (okei Jenny sleppur), Þórunn, Anna og þið hinar sem ekki eruð duglegar! Ég þykist vita að þið þjáist ekki af ritstíflu)  :evil:

 Lillianin


» 12 hafa sagt sína skoðun

12.09.2005 12:01:14 / Siggus

jabbadabbadú!

hvað segiði stúlkukindur? ríkir algjör óvissa í henni?? eru komnar einhverjar upplýsingar um dagsetningu og svoleiðis?

sakna ykkar...


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.09.2005 19:08:38 / Siggus

hver er sinnar gæfu smiður

jájá

brjálað stuð alltaf hérna á ykkur stelpur!

liggja, tölvast, borða, smakka kanadískan bjór, fara á klósettið, hleypa hundinum út, horfa á þátt, hella upp á kaffi, borða, pissa, blogga, tala, greiða mér, fara í sturtu, sofa, setja í þvottavél, spila tölvuleik, horfa á fréttirnar, horfa á lalla gera sturtuna klára og kl er bara sjö.Dagurinn í hnotskurn.

það var mjög fínt í gær á ballinu sem byrjaði kl átta og var búið kl eitt. Aldrei hef ég farið svona senmma á ball, það er eitt sem er víst. og aldrei farið á ball með sléttað hár og komið heim með krullað. og aldrei farið á ball þar sem fimm af ykkur eru ekki eða fleiri. theink god fyri Önnu Guðrúnu drykkjukonu. :) Takk fyrir kvöldið anna mín. ég var samt ekkert í geðveikum gír þar sem mitt verndaða umhverfi: þið hópurinn voruð ekki, þá var ég frekar óörugg og var ekki ein af þeim að klappa hljómsvetina upp. ég var strandaglópur hjá laugavatnsafleggjaranum og lalli svaraði ekki símanum þannig ég fékk far hjá frænku hans einars ottós (sem er alveg eins og mamma hennar þóru í útliti) í pulsuvagninn og þar fékk ÉG mer að borða alveg sjálf og beið með steinunni minni inni í pullaranum eftir fornalambi!

en allavegana, ég og steinunn ætlum aðeins að hittast yfir hvítvíni í kvöld og sjá svo til með ballið,heima hjá steinunni. á reyndar eftir að spyrja hana hvort við getum ekki verið þar en ykkur er velkomið að djóna okkur ;) ég hlakka svo til að hitta ykkur hvenær sem það verður.

Halla karen láttu þér batna!

she loves me jejejejejjee...

okkeeyyy bæææ


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.09.2005 17:49:00 / margrét

Bara ad lata vita af mer!!

 jaeja ta er eg loksins komin til Tyskalands en eg helt ad eg myndi nu bara ekkert komast nema til Danmerkur og turfa ad setjast upp a Sally;)

En tegar eg var komin tangad og aetladi ad fara ad tekka mig inn ta var buid af aflysa fluginu til Hannover vegna taeknilegra ördugleika og dises eg turfti ad fljuga fyrst til Frankfurt sem tok nu ekki nema 1 og halfan tima og sidan til baka til Hannover tannig ad eg var ekki komin fyrr en kl. 23 til Toris i stadinn fyrir ad eg atti ad vera komin kl. ca. sjö!!!!!!!

En vid erum buin ad vera svaka dugleg ad koma öllu fyrir og erum langt komin med ad rada öllu i skapa. Ibudin er rosa fin og med godum svölum sem er nu naudsynlegt nuna tar sem tad er buid ad vera um 30 stiga hiti sidan eg kom;)    Algjört aedi og vid forum i sundlaugargard i dag reyndar bara med einni rennibraut fyrir krakka en fint ad synda tarna og liggja i solbadi.

En nog af mer i bili

Tus

Margret


» 12 hafa sagt sína skoðun

08.09.2005 11:59:28 / helena

'Ovissu bústaðarferð!

Þær sem mættu ekki heim til Margrétar vita kannski ekki að óvissuferðin verður ekki síðustu helgina í september..ég sá smá umræðu um það hér fyrir neðan! en hún verður mjög líklega 21-23 októbert!!! hahah:)589464196418elín hér!

eruðu með mér elskurnar????????????????(mjög mikið notuð setning af ákveðnum kennara)

kommentið ef þið hafið eitthvað út á að setja

Síjú

Nýja reykjavíkurmærin!(leiðist soldið)

en ég og Elín vorum að kaupa okkur kort í Icelandic spa and fittnes


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.09.2005 15:38:51 / Siggus

titill

ANTM er í kveld stúlkur.. ætla einhverjar að horfa saman? en vitiði eitthvað hvernig sumum ganga í sumum þáttum? eitthhvað heyrt?


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.09.2005 19:54:44 / steinunn

Ball um helgina ?

Hver vill koma með mér á ball á laugardaginn ??

Langar svo að fara :|

Oxford er að spila í Hvíta Húsinu og það kostar bara 1000 kall inn :) (skyldist mér á Svövu)

Ég á reyndar eftir að redda vinnunni en...pís of keik ;)

Endilega kommentiði ef ykkur langar..

Steinunn---á þörfinni fyrir skemmtun og læti:!:

污;瑳

» 12 hafa sagt sína skoðun

06.09.2005 17:52:36 / Siggus

nei takk, ég er á bíl..

ég þefa af puttanum - ég fer á puttanum. Jejejejejeje

ég er í fríi í skólanum - þeink gad. Búin að dæla í mig íbúfen verkjastillandi og syng hástöfum.Ég ætlaði að leggjast í íbúkód því það var ekki til íbúfen, hringdi í höllu frænku í apótekinu og spurði hvort ég mætti örugglega ekki taka þessar inn. Hún sagði að ef ég vildi verða skrýtin í hausnum þá mætti ég taka þær. Ég hugsaði með mér að ég væri helvíti skrýtin í hausnum fyrir, ég mætti eiginlega ekki við hjálpartækjum í þeim bransa. Það hefði getað farið svo að ég myndi skjótast þrisvar í Bónus sama daginn og í hættu að geta ekki lesið aftan á súpupakkninguna, svo ég sleppti því.

Svo er það American next top model annað kvöld.. ég má nú ekki missa af því...

Ótrúlega háð.. Ég er oft að pæla kl tíu í sex að kveikja ekki á sjónvarpinu og sleppa því að horfa á nágranna því það gerist hvort sem er eithvað svo spennandi í lokin að ég verð að horfa á næsta og næsta og næsta og næsta og næsta...... en ég kveiki, ég læt undan freistingum. ég er agalaus.  þetta er vítahringur. hjálp.  Hugsið ykkur ef sjónvarpið væri ekki til.. mikið hlýtur að vera aukning á börnum eða smokkum. og ég tala nú ekki um prjónasokkunum. Klukkan er akkurat að slá í nágranna... á ég að sleppa því og halda áfram að "læra" eða á ég að freistast., bara kíkja smá? hvað ætli ég geri..

eins og nágrannar; framhald á morgun..

ég gæti aldrei unnið í fiski.

okkkeeyyybbææ


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 23:52:16 / anna

Svei mér erum við vinsælar stelpur!

116 veffarendur hafa farið um okkar síðu í dag og mér þætti gaman að sjá hverjir það eru sem kíkja hér við. Þess vegna hvet ég alla þá sem lesa þetta að kommenta hvort sem þið þekkið okkur eða ekki!

Anna forvitna...


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 23:02:47 / Siggus

ÉG

 var að horfa á svo æsispennandi þátt í sjóminu áðan að um jarðskjálfta að ég varð alveg kreisý!


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 10:05:08 / Helga Lillian

Hún á afmæli í dag!:)

Þann 5. september á því herrans ári 1984 fæddist þeim Áslaugu og Gunnari stúlkubarn sem fékk nafnið Halla Karen. Þessi stelpa varð fljótt kvenskörungur mikill og er enn þann dag í dag. Hún er ávallt hrókur alls fagnaðar og erum við því heppnar að eiga hana að.

Til hamingju með daginn Halla Karen mín, velkomin á þrítugsaldurinn!;)


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18